Barinn er að taka á sig nýja mynd með nýjum eigendum, barþjónarnir Dísa og Gústi reyna að aðlagast nýjum kringumstæðum meðfram því að taka skref í átt að eigin draumum
Flamingo Bar er kominn á síðasta séns og hlutirnir þurfa að gerast hratt. Bjarki og Tinna ákveða að leggja allt sem þau eiga í mikilvægt opnunarpartý, umfjöllun um barinn er allt sem þau þurfa!
Hlaðvarpið Gúliver í Gústalandi er á leiðinni á toppinn þökk sé Tinnu og hennar samböndum. Dísa tekur það á sig að passa barinn eitt kvöld, enda oftast ekki nema nokkrar hræður sem láta sjá sig, hver þarf dyravörð þá?
Þegar allt er farið í vaskinn, er þá eitthvað verra að taka aðra slæma ákvörðun? Kannski leiðir hún okkur á betri stað? Er hvort sem er til verri staður?